| Mán maí 21 @08:00 - 05:00eh Undirbúningur fyrir sjómannadag |
| Sun jún 03 @08:00 - 05:00eh Sjómannadagurinn |
| Sun jún 17 @08:00 - 05:00eh 17. júni vinna |
| Fim júl 05 @08:00 - 05:00eh Besta útihátíðin |
| Fös júl 06 @08:00 - 05:00eh Besta útihátíðin |
| Lau júl 07 @08:00 - 05:00eh Besta útihátíðin |
| Sun júl 08 @08:00 - 05:00eh Besta útihátíðin |
| Lau júl 14 @08:00 - 05:00eh Laugarvegshlaupið |
Tilkynningar
|
Mest lesið uppá síðkastið |
Undanfaraæfing
Undanfarahópur BFA fór á Eyjafjallajökul á sunnudaginn var. Gengið var upp skerjaleiðina og þar upp í snjólínu þar sem fjallaskíðin voru sett undir, þaðan var farið á Goðastein og einnig skoðaður gígurinn úr gosinu. Eftir það var ferðinni heitið á Guðnastein og Hámund sem er í 1560m hæð, þegar á toppinn var komið voru skinnin tekin undan og skíðað niður í átt að Seljavallarlaug. ![]() Gera athugasemd
Síðast uppfært (Miðvikudagur, 09. maí 2012 23:38) Útkall fólk í sjálfheldu
Í kveld fórum við í BFA í útkall ásamt Hjáparsveit skáta Hveragerði. Par sem var í fjallgöngu lenti í sjálfheldu þegar það var að ganga á Ingólfsfjall. Fólkið var ómeitt en að því orðið kalt og var að vonum brugðið. Vel gekk að koma parinu niður en Þau voru sett í sigbelti og línu og þannig komust þau niður með okkar aðstoð.
Gufuskálar
Við í unglingadeildinni Hnoðra áttum frábæra helgi á Gufuskálum í góðum félagsskap. Veðrið var draumur og allir skemmtu sér konunglega. Hér fylgir örlítil ferðasaga með: |
Útkall - Svifdreki
Í dag fór björgunarfélagið í útkall nærri Hveragerði, en þar hafði svifdrekakona orðið fyrir hnjaski, Við fórum á staðinn en Hjálparsveit Skáta Hveragerði var þegar komin á vettvang og sá Hjálparsveitin um að búa um svifdrekakonuna sem var svo flutt með þyrlu til Reykjavíkur. Síðast uppfært (Föstudagur, 20. apríl 2012 12:30) Krakkar og kassaklifur
Björgunarfélagið var með kassaklifur á hátíðarsvæði skátana í dag. Skátaranir stóðu fyrir heilmikilli skemmtun í dag og vorum við á staðnum með kassaklifur fyrir krakka á öllum aldri. Bátaæfing með nýliðum
Í dag fór bátaflokkurinn í siglingu á ölfusá. Með í för voru nýliðar þ.e.a.s nýliðar í sveitinni en það er hluti af nýliðaþjálfun sveitarinnar að sigla. Það var góð mæting og gekk allt vel. Farið var yfir notkun á kastlínum, hvernig fólk eigi að haga sér í straumvatni og hvernig eigi að bjarga fólki sem fallið hefur í straumvatn. Það sem bar hæst á æfingunni í dag er þó það að Buni virkaði eins og nýr eftir að hafa veriðí slipp í smá tíma, en sérlegur varaformaður bátaflokks náði með ævintýralegum hætti að drekkja greyinu um daginn. Síðast uppfært (Fimmtudagur, 19. apríl 2012 18:28) Föstudagurinn langi
Hin árlega ferð tækjaflokks var farin Föstudaginn langa. Farið var upp á Mýrdalsjökul hjá Sólheimajökli, keyrt yfir jökulinn og komið niður hjá Mælifelli. Þaðan var farið inn í Strút og borðað nesti og hlegið hátt. Gerð var tilraun til að fara inn að Strútslaug en eftir þriggja tíma tilraun var ákveðið að fresta því að fara í laugina. Þá var leiðinni haldið inn í Hvanngil. Við Hrútagil var hins vegar náð í spotta og spil voruð hituð upp þar sem þrír bílar fóru ofan í krapa og snjóbíll einnig en allt reddaðist það nú. Þegar komið var inn í Hvanngil var grillað og tankað á bílana. Hópurinn skipti sér þar og gestir ferðarinnar fóru niður hjá Fljótshlíð en okkar bílar fóru sömu leið heim. Skyggnið hefði mátt vera betra og meiri kuldi en mesti hiti sem mældist var 9°C. Ferðin heppnaðist þó vel í alla staði og fóru allir sælir heim eftir góðan dag á fjöllum :o)
Síðast uppfært (Þriðjudagur, 17. apríl 2012 09:17) |



